Úr Neanderdalnum |
|
|
Óreglulegt blogg, alvarlegt og í ritmálsstíl. ![]()
Sitthvað á íslensku
Norðaustan kaldi Staðlausir stafir Ljósvakalæðan Sitthvað á útlensku and misadventures of Naked Blog The Safeword Gamalt |
þriðjudagur, september 7
Föst staða Um daginn fór ég í viðtal vegna umsóknar minnar um fasta stöðu við Háskólann í X á Englandi. Viðtalið gekk þokkalega og ég fékk stöðuna. Ég átti að byrja í september, en samdi um að fresta því fram í janúar. Þetta þýðir að ég verð að flytja til Englands í árslok í síðasta lagi, og byrja að kenna strax í janúar. Ég veit ekki hvaða námskeið ég mun kenna. Ég hef ekkert kennt í nokkuð mörg ár, þetta er því spennandi. Líklega verð ég að kenna námskeið um vísindaskáldsögur og heimspeki, sem er ekki mín sterkasta hlið ... miðvikudagur, júlí 14
Markmið ársins voru fjögur:
Ég hljóp maraþon í byrjun maí. Tíminn var í lagi fyrir byrjanda, 4:46:48. Ég var feginn að klára hlaupið og koma hlaupandi í mark. E.t.v. reyni ég við hálft Reykjavíkurmaraþon. Sjáum til. Á föstudaginn kvænist ég. Ég er búinn að fá vinnu, en tímabundið til 12 mánaða. Ég er búinn að sækja um fasta stöðu. Doktorsritgerðin hefur verið samþykkt til útgáfu, en ég er ekki búinn að verja hana. Ég hef ekkert unnið í henni í tvö ár. Semsagt: ég hef náð markmiðum 3 og 4, markmiði 2 næ ég vonandi á föstudag (!) og markmið 1 mun halda áfram að valda mér skelfingu um ókomna tíð. Ég fékk stöðuna við Háskólann í X á Englandi. Og nú er ég búinn að sækja um fasta stöðu við sama skóla. Ég fer í viðtal um miðjan ágúst. Spenntur. föstudagur, mars 19
Heim! Ég ákvað að nota tækifærið og fara heim á Skerið um næstu helgi. Ég er búinn að bóka flug með alls konar lágfargjaldaflugfélögum - Air Berlin frá Düsseldorf til London Stansted, Iceland Express frá Stansted til Keflavíkur og frá Keflavík til Kaupmannahafnar, og loks V-Bird frá Köben til Niedrrhein "near Düsseldorf" flugvallar. Ég vona að ekkert af þessum flugfélögum verði gjaldþrota í millitíðinni. Flugið með Iceland Express kostar rúmlega 20 þús. kr., en flugið til London 3000 kr. og sama frá Kaupmannahöfn til Niederrhein. Ég þarf að taka lest á Englandi, sem kostar tvisvar sinnum meira en flugið til Englands. Viðtal Ég hef verið boðaður í viðtal hjá tilvonandi vinnuveitanda á Englandi. Viðtalið er á miðvikudaginn í næstu viku. Jakkafötin eru í hreinsun og fiðrildin eru farin að flögra í maganum. Reyndar kemur annar kandídat líka í viðtal, en ég hef rökstuddan grun um að ég hafi betur. Reyndar bauð austurrískur kunningi minn mér aðstoð. Hann er kvæntur ítalskri konu og hefur góð sambönd á Ítalíu. Hann sagði mér að Giovanni skuldi sér greiða og geti tryggt að ég fái stöðuna. Ég er að spá í þetta. þriðjudagur, febrúar 24
Ráðstefna Ég er að undirbúa ráðstefnu sem verður í lok ágúst. Eina fólkið sem sýnir ráðstefnunni einhvern áhuga er fólk frá Austur-Evrópu, Afríku og Asíu, sem vill fá borgað fyrir að koma á ráðstefnuna. Jú, og svo einhverjir lögfræðingar eða bankafólk, flest í Nígeríu, sem var að finna tugmilljónir dollara og vill deila fúlgunni með mér. Ég gæti kannski leitt þetta fólk saman ... föstudagur, febrúar 20
Kjötkveðjuhátíð hófst hér í gær á Kerlingadegi. Að gömlum sið ruddust kerlingar inn í ráðhús Düsseldorfborgar, tóku lyklavöldin af borgarstjóranum og klipptu á bindið hans. Hvað ætli það tákni, Freud? Meðan á hátíðinni stendur safnast fólk saman í bænum, margir grímuklæddir, og hella í sig bjór. Þetta er eins og blanda af öskudegi og verslunarmannahelgi ... Fjörinu lýkur svo á mánudaginn með mikilli skrúðgöngu. Ég held að við kíkjum aðeins í bæinn á sunnudag, einn dagur af þessum ósköpum nægir alveg fyrir árið. Veður og færð Nú skín loksins sól, en það er líka kalt: Um frostmark. Mig langar ekkert út að hlaupa. Sem betur fer er bara rólegt 8k hlaup á dagskránni í dag. fimmtudagur, febrúar 19
Markmið #1 Ég stefni á að ljúka ritgerðinni með vorinu, leggja hana fram í haust og verða doktor síðla hausts eða í byrjun vetrar... Markmið #2 Yfirvöld hér í Norðurrín-Vestfalíu hafa veitt mér leyfi til að kvænast. Við erum búin að fá tíma fyrir borgaralega giftingu á (eflaust) sólríkum sumardegi í júlí. Við erum líka búin að bóka veitingahús fyrir brúðkaupsveisluna á óskaplega rómantískum stað í litlum dal (ekki Neanderdalnum) með læk og tjörn og skógi og gamalli myllu. Markmið #3 Ég er að sækja um vinnu við háskóla á Englandi. Ég kemst að því eftir rúman mánuð hvort ég fái vinnuna og nái þarmeð markmiði #3. Markmið #4 Ég er búinn að skrá mig í maraþon hér í Þýskalandi. Ég sé fram á töluverð ferðalög á næstu tveim mánuðum og verð að finna mér hlaupaleiðir á Englandi, Íslandi, í Svíþjóð og Japan. Ef allt gengur að óskum hleyp ég maraþon 2. maí og hef þarmeð náð markmiði #4. miðvikudagur, janúar 14
Markmið ársins Það er rosalega hallærislegt að setja sér háleit markmið í upphafi árs. Svona eins og áramótaheitin, sem enginn efnir. En ég er nú einu sinni dálítið hallærislegur, svo það kemur sjálfsagt engum á óvart þótt ég setji mér markmið fyrir árið. Og ljóstri þeim upp fyrir mínum stóra lesendahópi. Markmiðin eru fjögur:
En ekki endilega í þessari röð. Langt um liðið síðan ég síðast reit. Nýtt persónulegt met í bloggfalli, ef mig misminnir ekki. En það er ekki hægt að blogga bara um eigið bloggfall. |