Úr Neanderdalnum

Óreglulegt blogg, alvarlegt og í ritmálsstíl.


Click for Duesseldorf, Germany Forecast

This page is powered by Blogger. Isn't yours?


Weblog Commenting by HaloScan.com
miðvikudagur, janúar 14
 
Markmið ársins
Það er rosalega hallærislegt að setja sér háleit markmið í upphafi árs. Svona eins og áramótaheitin, sem enginn efnir. En ég er nú einu sinni dálítið hallærislegur, svo það kemur sjálfsagt engum á óvart þótt ég setji mér markmið fyrir árið. Og ljóstri þeim upp fyrir mínum stóra lesendahópi. Markmiðin eru fjögur:

1. Verða loksins doktor.
2. Kvænast.
3. Finna mér vinnu.
4. Hlaupa maraþon.

En ekki endilega í þessari röð.

 
Langt um liðið
síðan ég síðast reit. Nýtt persónulegt met í bloggfalli, ef mig misminnir ekki. En það er ekki hægt að blogga bara um eigið bloggfall.