Úr Neanderdalnum

Óreglulegt blogg, alvarlegt og í ritmálsstíl.


Click for Duesseldorf, Germany Forecast

This page is powered by Blogger. Isn't yours?


Weblog Commenting by HaloScan.com
föstudagur, febrúar 20
 
Kjötkveðjuhátíð
hófst hér í gær á Kerlingadegi. Að gömlum sið ruddust kerlingar inn í ráðhús Düsseldorfborgar, tóku lyklavöldin af borgarstjóranum og klipptu á bindið hans. Hvað ætli það tákni, Freud? Meðan á hátíðinni stendur safnast fólk saman í bænum, margir grímuklæddir, og hella í sig bjór. Þetta er eins og blanda af öskudegi og verslunarmannahelgi ... Fjörinu lýkur svo á mánudaginn með mikilli skrúðgöngu. Ég held að við kíkjum aðeins í bæinn á sunnudag, einn dagur af þessum ósköpum nægir alveg fyrir árið.

 
Veður og færð
Nú skín loksins sól, en það er líka kalt: Um frostmark. Mig langar ekkert út að hlaupa. Sem betur fer er bara rólegt 8k hlaup á dagskránni í dag.

fimmtudagur, febrúar 19
 
Markmið #1
Ég stefni á að ljúka ritgerðinni með vorinu, leggja hana fram í haust og verða doktor síðla hausts eða í byrjun vetrar...

 
Markmið #2
Yfirvöld hér í Norðurrín-Vestfalíu hafa veitt mér leyfi til að kvænast. Við erum búin að fá tíma fyrir borgaralega giftingu á (eflaust) sólríkum sumardegi í júlí. Við erum líka búin að bóka veitingahús fyrir brúðkaupsveisluna á óskaplega rómantískum stað í litlum dal (ekki Neanderdalnum) með læk og tjörn og skógi og gamalli myllu.

 
Markmið #3
Ég er að sækja um vinnu við háskóla á Englandi. Ég kemst að því eftir rúman mánuð hvort ég fái vinnuna og nái þarmeð markmiði #3.

 
Markmið #4
Ég er búinn að skrá mig í maraþon hér í Þýskalandi. Ég sé fram á töluverð ferðalög á næstu tveim mánuðum og verð að finna mér hlaupaleiðir á Englandi, Íslandi, í Svíþjóð og Japan. Ef allt gengur að óskum hleyp ég maraþon 2. maí og hef þarmeð náð markmiði #4.