Úr Neanderdalnum |
|
|
Óreglulegt blogg, alvarlegt og í ritmálsstíl. ![]()
Sitthvað á íslensku
Norðaustan kaldi Staðlausir stafir Ljósvakalæðan Sitthvað á útlensku and misadventures of Naked Blog The Safeword Gamalt |
föstudagur, mars 19
Heim! Ég ákvað að nota tækifærið og fara heim á Skerið um næstu helgi. Ég er búinn að bóka flug með alls konar lágfargjaldaflugfélögum - Air Berlin frá Düsseldorf til London Stansted, Iceland Express frá Stansted til Keflavíkur og frá Keflavík til Kaupmannahafnar, og loks V-Bird frá Köben til Niedrrhein "near Düsseldorf" flugvallar. Ég vona að ekkert af þessum flugfélögum verði gjaldþrota í millitíðinni. Flugið með Iceland Express kostar rúmlega 20 þús. kr., en flugið til London 3000 kr. og sama frá Kaupmannahöfn til Niederrhein. Ég þarf að taka lest á Englandi, sem kostar tvisvar sinnum meira en flugið til Englands. Viðtal Ég hef verið boðaður í viðtal hjá tilvonandi vinnuveitanda á Englandi. Viðtalið er á miðvikudaginn í næstu viku. Jakkafötin eru í hreinsun og fiðrildin eru farin að flögra í maganum. Reyndar kemur annar kandídat líka í viðtal, en ég hef rökstuddan grun um að ég hafi betur. Reyndar bauð austurrískur kunningi minn mér aðstoð. Hann er kvæntur ítalskri konu og hefur góð sambönd á Ítalíu. Hann sagði mér að Giovanni skuldi sér greiða og geti tryggt að ég fái stöðuna. Ég er að spá í þetta. |