Úr Neanderdalnum

Óreglulegt blogg, alvarlegt og í ritmálsstíl.


Click for Duesseldorf, Germany Forecast

This page is powered by Blogger. Isn't yours?


Weblog Commenting by HaloScan.com
miðvikudagur, júlí 14
 
Markmið ársins voru fjögur:

1. verða loksins doktor
2. kvænast
3. hlaupa maraþon
4. fá vinnu

Ég hljóp maraþon í byrjun maí. Tíminn var í lagi fyrir byrjanda, 4:46:48. Ég var feginn að klára hlaupið og koma hlaupandi í mark. E.t.v. reyni ég við hálft Reykjavíkurmaraþon. Sjáum til.
Á föstudaginn kvænist ég.
Ég er búinn að fá vinnu, en tímabundið til 12 mánaða. Ég er búinn að sækja um fasta stöðu.
Doktorsritgerðin hefur verið samþykkt til útgáfu, en ég er ekki búinn að verja hana. Ég hef ekkert unnið í henni í tvö ár.
Semsagt: ég hef náð markmiðum 3 og 4, markmiði 2 næ ég vonandi á föstudag (!) og markmið 1 mun halda áfram að valda mér skelfingu um ókomna tíð.


 
Ég fékk stöðuna við Háskólann í X á Englandi. Og nú er ég búinn að sækja um fasta stöðu við sama skóla. Ég fer í viðtal um miðjan ágúst. Spenntur.

 
Löng þögn ... en ég er kominn aftur.