Úr Neanderdalnum

Óreglulegt blogg, alvarlegt og í ritmálsstíl.


Click for Duesseldorf, Germany Forecast

This page is powered by Blogger. Isn't yours?


Weblog Commenting by HaloScan.com
þriðjudagur, september 7
 
Föst staða
Um daginn fór ég í viðtal vegna umsóknar minnar um fasta stöðu við Háskólann í X á Englandi. Viðtalið gekk þokkalega og ég fékk stöðuna. Ég átti að byrja í september, en samdi um að fresta því fram í janúar. Þetta þýðir að ég verð að flytja til Englands í árslok í síðasta lagi, og byrja að kenna strax í janúar. Ég veit ekki hvaða námskeið ég mun kenna. Ég hef ekkert kennt í nokkuð mörg ár, þetta er því spennandi. Líklega verð ég að kenna námskeið um vísindaskáldsögur og heimspeki, sem er ekki mín sterkasta hlið ...